Menntaskólinn á Tröllaskaga fékk úthlutað 500.000 krónum úr Sprotasjóði í verkefni er nefnist "Úrgangslist". Verkefnið tengist listnámi skólans þar sem markmiðið er að breyta rusli í listaverk.
Umsjónarmaður verkefnisins er Bergþór Morthens fagurlistakennari skólans. Verkefnið er þess eðlis að hvatt er til samstarfs milli stofnana, sérstaklega innan sveitarfélagsins. Framkvæmdin birtist í samvinnu skóla og annarra stofnana samfélagsins.
Það er stefna Fjallabyggðar að flokkun sorps verði efld og endurnýting og endurvinnsla aukin. Þarna kemur samstarfið milli skóla og stofnana samfélagsins sterkt inn, hægt er að gefa hlutum sem venjulega hefði verið hent nýtt hlutverk í gegnum myndlistina.
Markmið verkefnisins er að nemendur:
• skapi list úr úrgangi.
• kynnist hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
• efli tengsl við grenndarsamfélagið út frá hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.
• vinni með efni sem alla jafna er hent og gefa því nýtt líf þannig að nemendur og samfélagið í heild kynnast því að myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.
• skapi hringrás efnis í stað förgunar þess.
• fái skilning á því að hringrás efnis dregur úr frumvinnslu hráefna.




Athugasemdir