Á skíđum skemmti ég mér tralalalaaa

Á skíđum skemmti ég mér tralalalaaa Nú styttist í skíđavertíđina og örugglega mörgum fariđ ađ hlakka mikiđ til ţess ađ geta skellt sér á skíđ. Ţegar ég

Fréttir

Á skíđum skemmti ég mér tralalalaaa

Nú styttist í skíðavertíðina og örugglega mörgum farið að hlakka mikið til þess að geta skellt sér á skíð.

 
Þegar ég tók þetta myndband og annað sem verður sýnt á morgun þá var ég nýlega byrjaður að taka myndbönd á gopro vélina mína af einhverju viti (eða óviti) og kunni þar af leiðandi ekkert sérstaklega vel á hana. Ég verð líka að reyna að afsaka kunnáttu mína í að klippa til myndbönd sem var á þeim tíma mjög takmörkuð og er sjálfsagt enn.
 
En þetta kannski sýnir að einhverju litlu leyti hvað skíðasvæðið í Skarðsdal hefur upp á að bjóða.
 
Myndbandið var tekið um páskana 2013 í blíðskaparveðri. 
 
Sama lagið hljómar undir í báðum myndböndunum og það líklega því um að kenna að fleiri lög voru ekki inn í því klippiforriti sem var notað, og þá aðalega var það út af hugsunar og kunnáttuleysi notanda.
 
En vonandi kemur smá skíða-spenningur í ykkur þegar þið sjáið þessi myndbönd.
 


Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst