Aðalfundur hundamannafélagsins Trölla
Síðastliðinn miðvikudag hélt Hundamannafélagið Trölli aðalfund sinn. Fundurinn var vel sóttur og bættust þar við nýir félagar.
Félagið var stofnað með það að markmiði að stuðla að betri samskiptum milli hundaeigenda, bæjarbúa og bæjaryfirvalda, stuðla að jákvæðri ímynd hundaeigenda og hunda í Fjallabyggð, vinna að sameiginlegum hagsmunum þessara aðila og stuðla að bættum aðbúnaði fyrir hunda í bæjarfélaginu.
Rætt var um vel heppnað liðið ár og hvernig hægt væri að gera jafnvel meira á komandi ári. Á síðasta ári fékk félagið meðal annars til sín hundaþjálfara frá Akureyri sem leiðbendi félagsmönnum hvernig þeir geti hugsanlega bætt samskipti sín við hundinn.
Talað var um dýralækninn og hvernig skipulagi væri háttað í kringum heimsóknir hunda til hans. Allir hundaeigendur eru skyldugir til að mæta með hund sinn í árlega bólusetningu og ormahreinsun. Margir hundaeigendur voru ósáttir hvernig staðið er að þessum skoðunum og myndast gjarnan margra klukkutíma bið eftir að komast að hjá lækninum, jafnvel einungis til að sýna vottorð um að skoðunin hafi þegar átt sér stað annarstaðar.
Á fundinum var mikið rætt um ákvörðun skipulags og umhverfisnefndar um að banna hunda alfarið á svæðunum frá Bakkatjörn að Strákagöngum annarsvegar og eftir Langeyrarvegi frá Norðurtúni að íþróttamiðstöðinni að Hóli hinsvegar. Einnig var rætt um tillögu nefndarinnar að hugsanlegu banni hunda á snjóflóðavarnagörðunum. Hundaeigendur ganga mikið á þessum svæðum og er þetta því skiljanlega mikið hagsmunamál fyrir þá.
Rætt var um lausagöngu hunda og þá staðreynd að sumir hundaeigendur þrífi ekki upp eftir hunda sína og sverti þannig orðspor þess meirihluta sem fer eftir reglum bæjarins um hundahald. Hundamannafélaginu finnst þetta miður og vonast til að bæjaryfirvöld taki upp kerfi sem bitni ekki á þeim hundaeigendum sem fylgja settum reglum.
Á hverjum sunnudegi klukkan 14.00 mun Hundamannafélagið Trölli hittast við dæluskúrinn þaðan sem lagt verður af stað í göngu með hundunum. Er það kjörið tækifæri fyrir bæði hunda og fólk til að kynnast og njóta útiverunnar. Trölli hvetur alla hundaeigendur til að taka þátt og eru nýir meðlimir ávalt velkomnir.
Einnig vill Trölli benda bæjarbúum á heimasíðu félagsins www.trolli.is/




Athugasemdir