Aðilar í Fjallabyggð fá styrki frá Menningarráði Eyþings
sksiglo.is | Almennt | 24.03.2010 | 07:00 | Sigríður María Róbertsdóttir | Lestrar 296 | Athugasemdir ( )
Það er gleðilegt að segja frá því að sex styrkir frá Menningarráði Eyþings fóru í verkefni sem sveitarfélagið, einstaklingar og félög í Fjallabyggð fengu. Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu styrk:
Fjallabyggð, til að halda Grænlenska menningarviku barna og unglinga í nóvember.
Jassklúbbur Ólafsfjarðar til að vera með blússkóla - ,,bryggjublús“ á blúshátíðinni í byrjun júlí.
Ljóðasetrið Glói fékk styrk til að láta hanna og prenta veggspjöld á Ljóðasetrið.
Ljóðahátíðin Glóð á Siglufirði.
Fríða Gylfadóttir fékk styrk í ,,Fjallabyggðartrefilinn“ sem tengja á Ólafsfjörð og Siglufjörð við opnun Héðinsfjarðarganga.
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði
Siglo.is óskar þessum aðilum til hamingju með styrkinn.
Athugasemdir