Æfinga- og keppnisferð meistaraflokks KS/Leifturs
Miðvikudaginn 21.apríl héldu leikmenn og þjálfarar KS/Leifturs af stað suður í æfinga- og keppnisferð. Markmið ferðarinnar var að fara yfir áherslur sumarsins, spila tvo leiki og þétta hópnum saman fyrir komandi átök.
Óskar Þórðarson sendi okkur ferðasögu meistaranna.
Á fimmtudeginum var vaknað snemma og létt æfing tekin í Risanum í Hafnarfirði. Seinni partinn var síðan síðasti leikurinn í Lengjubikarkeppninni spilaður í Kórnum.
Andstæðingarnir voru Tindastólsmenn og eftir að staðan hafi verið 0-1 í hálfleik, tóku við öll völd í leiknum og sigruðum 3-1. Með þessum sigri endaði liðið í 2.sæti í riðlinum með 4 sigra og eitt tap, en komst því miður ekki áfram í undanúrslit í mótinu.
Á föstudagsmorgninum mættu menn á æfingu kl 09,30 í Risanum og var tekið vel á því.
Í lok æfingarinnar var spilað ungir á móti gömlum þar sem hart var tekist á. Ef talað er við eldri leikmennina þá endaði leikurinn 3-2 fyrir þeim, en ef talað er við yngri leikmennina þá endaði hann 3-3. Yngri leikmennirnir töldu sig hafa skorað eitt löglegt mark þar sem eldri dæmdu rangstöðu. Málið fór fyrir kærunefnd en niðurstaða er ekki ennþá komin.
Um 15:30 héldu menn í Sporthúsið í Kópavogi þar sem farið var í „Hot Joga“. Í Hot Joga voru framkvæmdar hinar ýmsu stöðugleika- og liðleikaæfingar og sáust ótrúleg tilþrif leikmanna, sérstaklega hjá þeim sem eru stirðir. Þrátt fyrir litla hreyfingu á þessari æfingu þá lak lýsið af mönnum enda voru um 40° í æfingaherberginu. Um kvöldið var haldin fundur þar sem farið var yfir hin ýmsu mál varðandi sumarið og greinilegt að leikmenn eru orðnir spenntir fyrir sumrinu.
Á laugardeginum var tekin létt morgunæfing í Risanum. Seinnipartinn var síðan spilaður æfingaleikur við Pepsí deildarlið Grindavíkur. Þrátt fyrir 4-0 tap sáust góð tilþrif í leiknum þar sem varnarleikurinn var traustur stærstan hluta leiksins og liðið skapaði sér nokkur góð marktækifæri. Menn voru nokkuð sáttir að leik loknum þrátt fyrir tapið enda Grindvíkingar með mjög sterkt lið. Um kvöldið fóru allir að borða saman á Ruby Tuesday og síðan var farið í Keiluhöllina þar sem skemmtileg tilþrif sáust við billjardborðið.
Sunnudagurinn var rólegur þar sem menn skelltu sér í sund á Álftanesi og slökuðu á eftir þrjá mjög svo erfiða daga. Síðan var sest upp í rútu og haldið heim á leið. Í heildina séð gekk ferðin mjög vel og að henni lokinni voru allir sáttir með hvernig til tókst.
Fyrir hönd meistaraflokks
Óskar Þórðarson



Athugasemdir