Afmæliskveðjurnar á siglo.is
sksiglo.is | Almennt | 22.01.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 371 | Athugasemdir ( )
Fyrir þónokkru síðan var mikið sent inn af afmæliskveðjum á
siglo.is
Af einhverjum ástæðum hefur þetta dalað mikið hjá okkur og
hugsanlega er það að einhverju leyti okkur sjálfum hjá siglo.is að kenna og við kannski ekki sinnt þessu
málefni sem skildi. Tilkoma facebook og afmæliskveðja þar hefur líklega mikil áhrif á þetta líka.
En við viljum endilega reyna að halda þessu áfram og vonandi fáum við
meira af sendingum með afmæliskveðjum til okkar.
Ef þið viljið koma afmæliskveðjum á framfæri þá
megið þið endilega senda á okkur á sksiglo@sksiglo.is
Mynd við frétt fengin af netinu.
Athugasemdir