Allinn málaður
sksiglo.is | Almennt | 13.07.2010 | 11:50 | Bergþór Morthens | Lestrar 476 | Athugasemdir ( )
Allinn fær nú góða andlitslyftingu og er byrjað að mála húsið.
Allinn sem staðsettur er í sögufrægu húsi í miðbæ Siglufjarðar var farinn að láta á sjá. Fyrr í sumar var farið í steypuviðgerðir á húsinu og nú er komið að því að mála.
Þessi framkvæmd á eftir að setja mikinn svip á húsið og miðbæinn í heild sinni. Til stendur hjá fleiri aðilum í miðbænum að mála húsin sín þannig að heildarsvipur miðbæjarins verður allt annar og betri.
Þetta eru svo sannarlega góðar fréttir og spennandi verður að fylgjast með þróun mála í miðbænum.

Athugasemdir