Ályktun frá stjórn Landsbyggðarinnar lifi

Ályktun frá stjórn Landsbyggðarinnar lifi Stjórn Landsbyggðarinnar lifi, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að binda í lög hvaða opinber þjónusta skuli vera

Fréttir

Ályktun frá stjórn Landsbyggðarinnar lifi

Mynd fengin af vef feykis.is
Mynd fengin af vef feykis.is

Stjórn Landsbyggðarinnar lifi, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að binda í lög hvaða opinber þjónusta skuli vera á hverju landssvæði fyrir sig, með það að markmiði að þjónustustig sé ekki skert á þann hátt að fólki sé mismunað eftir landssvæðum.


Einnig er mikilvægt að rekstrarhagræðing skili raunverulegum sparnaði en felist ekki einungis í flutningi á þjónustu og þar með kostnaði milli landssvæða og standa þannig vörð um hagsmuni íbúa landsins alls til framtíðar, hvort sem í hlut eiga fámennar byggðir eða þéttbýli.

Greinargerð :
Lýst er þungum áhyggjum yfir stefnuleysi stjórnvalda í uppbygginu og rekstri opinberrar þjónustu. Nausynlegt er að sett verði skýr stefna um hvaða þjónusta skuli vera á hverju landssvæði fyrir sig og settur verði skýr lagarammi utan um þá þjónustu með það að markmiði að fjármagnið nýtist sem best til hagsbóta fyrir íbúa landsins alls.Það er ólíðandi að fjárlög sem kynnt eru í lok hvers árs og eins og nú síðast voru samþykkt í desember séu stefnumótandi fyrir lífsafkomu heilu byggðalaganna og geti breytt aðstæðum þeirra sem þar búa í einu vetfangi.

Það er ekki ásættanlegt að móta í raun stefnuna til eins árs í senn. Þessi stutti tími skapar hættu á skammtímasparnaði sem hugsanlega myndar kostnað til lengri tíma vegna uppsafnaðra fjárfestinga-og þjónustuþarfa.Móta þarf langtímastefnu um opinbera þjónustu þar sem litið er á heildarrekstrarkostnað opinberra þjónustu yfir lengra tímabil.

Óöryggi um framtíð byggðarlaga og þar með þeirra sem þar búa dregur úr þeim allan kraft m.a. til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar. Hlutverk fjárlaga á að vera að sjá til þess að stefnu stjórnvalda sé framfylgt, en ekki móta hana.

Fjárlög ársins 2011 bera þess ljósan vott að stjórnvöld hafa ekki mótað nokkra framtíðarstefnu um hlutverk og umfang þeirrar þjónustu og starfsemi sem ríkið á að veita og það er ekki á nokkurn hátt ásættanlegt að svo verði áfram.


Athugasemdir

14.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst