Bæjarlistamaður 2011 heiðraður

Bæjarlistamaður 2011 heiðraður Í tilefni þess að Menningarnefnd hefur valið Örlyg Kristfinnsson myndlistarmann, hönnuð og rithöfund bæjarlistamann

Fréttir

Bæjarlistamaður 2011 heiðraður

Örlygur Kristfinnsson bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið  2011. Ljósm. B. M.
Örlygur Kristfinnsson bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2011. Ljósm. B. M.

Í tilefni þess að Menningarnefnd hefur valið Örlyg Kristfinnsson myndlistarmann, hönnuð og rithöfund bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011, mun sérstök viðhöfn fara fram 25. febrúar kl. 17.00 í Ráðhúsinu þar sem bæjarlistamaðurinn verður heiðraður.

Markmiðið með því að tilnefna bæjarlistamann ár hvert er að hvetja og auka áhuga á listsköpun og bæta menningarlíf íbúa. Um leið er það viðurkenning bæjaryfirvalda að sköpun og list skipti samfélagið máli.

Slík nafnbót er jafnframt auglýsing á listamanninum og sveitrarfélaginu. Styrkur til bæjarlistamanns 2011 nemur kr. 150.000.

Athugasemdir

12.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst