Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2010

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2010 Menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og /eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2010.

Fréttir

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2010

Menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og /eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2010.

Markmiðið með því að tilnefna bæjarlistamann ár hvert er að hvetja og auka áhuga á listsköpun og bæta menningarlíf íbúa. Um leið er það viðurkenning bæjaryfirvalda að sköpun og list skipti samfélagið máli. Loks er slík nafnbót auglýsing á listamanninum og sveitarfélaginu. Styrkur til bæjarlistamanns 2010 nemur kr. 250.000.

Umsóknir skulu berast fyrir 17. mars 2010 til Karítasar Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa, Ólafsvegi 4, 625, Ólafsfirði, sími 464 9200.


Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Fjallabyggðar


1.gr.
Menningarnefnd Fjallabyggðar veitir listamanni í Fjallabyggð nafnbótina ,,Bæjarlistamaður Fjallabyggðar“, ásamt styrk til eins árs. Aðeins þeir listamenn sem búsettir hafa verið í Fjallabyggð að minnsta kosti um tveggja ára skeið koma til greina.  Nafnbótin getur hvort sem er hlotnast einstaklingum eða hópi.

2. gr.
Styrkurinn  skal vera ákveðin upphæð á ári samkvæmt fjárhagsáætlun.  Upphæð styrks skal koma fram þegar auglýst er eftir bæjarlistamanni.
                                                            
3. gr.
Menningarnefnd auglýsir eftir umsóknum og/eða óskar eftir rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann, en er þó ekki bundin af því. Auglýst skal í bæjarblöðum og á heimasíðu Fjallabyggðar fyrir 25. nóvember ár hvert. Ákvörðun um bæjarlistamann er tekin af menningarnefnd ásamt óháðum fagaðila.

4. gr.
Í umsókn listamanns skal koma fram á hvern hátt hann hugsi sér að láta  sveitarfélagið og íbúa þess njóta listar sinnar. Það getur t.d. verið  með sýningar- eða tónleikahaldi, samstarfi við félög bæjarins og skóla, eldri borgara og/eða aðra listamenn í sveitarfélaginu í samráði við menningarfulltrúa. Í lok árs skal bæjarlistamaður gera menningarnefnd stuttlega grein fyrir því hvernig til hefur tekist,  með greinargerð.
    
5.gr.
Bæjarlistamaður er tilnefndur í upphafi árs út almanaksárið. Menningarnefnd mælist til þess að “Bæjarlistamaður Fjallabyggðar” láti nafnbótina koma fram sem víðast.  

6.  gr.
Gera skal skriflegan samning við bæjarlistamann.

7. gr.
Reglur þessar taka gildi við samþykkt þeirra í bæjarstjórn.
Samþykkt á 44. fundi bæjarstjórnar 15. desember 2009  




Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst