Birgir og Leó spjalla við burtflutta Siglfirðinga

Birgir og Leó spjalla við burtflutta Siglfirðinga Á dögunum var hafinn af fullum krafti undirbúningur að gerð pistla sem áformað er að birtist á

Fréttir

Birgir og Leó spjalla við burtflutta Siglfirðinga

Á dögunum var hafinn af fullum krafti undirbúningur að gerð pistla sem áformað er að birtist á siglo.is tvisvar til fjórum sinnum í mánuði í vetur, og er von á þeim fyrstu allra næstu daga.

 

Þar munu þeir Birgir Ingimarsson og Leó R Ólason sækja heim nokkra burtflutta Siglfirðinga, fara yfir lífshlaup þeirra á léttari nótunum og grúska í myndaalbúmum. Fátt vildu þeir félagar segja um hverjir fyrstu viðmælendurnir væru, en létu þess þó getið að þeir muni eiga það sameiginlegt að hafa komið verulega við sögu Siglfirskrar dans og dægurtónlistar á liðnum árum og áratugum.

Og þá er bara að bíða og sjá hverjir það verða sem mæta til spurninga.


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst