Bjart framundan í Fjallabyggð

Bjart framundan í Fjallabyggð Ferðatengd þjónusta er í mikilli uppsveiflu í Fjallabyggð. Einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök hafa lagt sitt af

Fréttir

Bjart framundan í Fjallabyggð

Ferðamenn á Síldarmynjasafninu. Ljósmyndari; FYK
Ferðamenn á Síldarmynjasafninu. Ljósmyndari; FYK

Ferðatengd þjónusta er í mikilli uppsveiflu í Fjallabyggð. Einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök hafa lagt sitt af mörkum við þessa uppbyggingu og lýtur út fyrir að bjart sé framundan í þessari iðn.


Egill Rögnvaldsson skrifar góða grein sem birt var á Siglo.is í gær þar sem hann ræðir uppbyggingu á ferðamennsku í Fjallabyggð. Kemur hann þar inná þá þróun sem átt hefur sér stað á síðastliðnum árum.

Fjöldi hátíða hafa skotið upp kollinum sem tengjast menningartengdum ferðaiðnaði. Má þar helst nefna Síldarævintýrið og Þjóðlagahátíðina á Siglufirði og Blúshátíðina á Ólafsfirði.  Í dag eru allar þessar hátíðir í höndum einkaaðila eða félagasamtaka sem leggja metnað sinn í að gera þær sem glæsilegastar. Söfnin á Siglufirði hafa blómstrað og eru marglofuð og heimsþekkt. Galleríum fjölgar og bjóða þau uppá mikið úrval listmuna. Skíðasvæðið hefur verið í miklum uppgangi síðastliðin tvö ár og nú síðast hefur Hótel Brimnes ráðist í glæsilegt framtak við að markaðssetja Fjallabyggð sem áfangastað fyrir fullaskoðunarunnendur og göngugarpa.

Framtíð Fjallabyggðar er nú í mótun og áherslur einkageirans hafa þróast á þann veginn að íbúar bæjarfélagsins þurfa ekki lengur að treysta einvörðungu á sjávarútveginn sem tekjulind. Á komandi árum munu störf tengd ferðaþjónustu fá aukið vægi og fjölga í Fjallabyggð. Veitingastaðir koma til með að blómstra, gistiheimili og tjaldsvæði fyllast og ýmsir afþreyingamöguleikar skjóta upp kollinum.

Ferðaþjónustu fylgir mikið líf og á komandi árum munu firðirnir tveir reisa sig við og iða af mannlífi.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst