Bocciamót FM Trölla
sksiglo.is | Almennt | 06.03.2014 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 224 | Athugasemdir ( )
Laugardaginn 1. mars var bocciamót í íþróttahúsinu á Siglufirði.
Keppt var á milli Snerpu og Tröllabarna.
Í stuttu máli getum við einfaldlega sagt það að félagsmenn Snerpu hafi hreinlega rúllað Tröllabörnunum upp.
Það var samdóma álit hjá þeim Tröllabörnum að þessi íþrótt líti nú út fyrir að vera
auðveldari en hún er, og jafnframt mjög skemmtileg þau vilja endilega endurtaka þetta aftur.
Ég held að ég geti fullyrt það að Hrólfur hafi staðið sig langbezt af Tröllabörnunum og mér heyrðist það vera
samhljóma álit allra á svæðinu.
Úrslit voru þau að Íris og Þórhallur unnu mótið og Hjálmar og Jónas voru í öðru sæti og kepptu þau fyrir
hönd Snerpu. Ekkert af liðum Tröllabarna komst í úrslit.
Tröllabörn færðu keppendum Snerpu lítið páskaegg fyrir þátttökuna.
Eftirtaldir fá miklar þakkir frá Tröllabörnum fyrir aðstoð og góðan leik : Stína Þorgeirs , Pála Kristins, Karen Birgis,
Kristín Ágústa, Auður Kapitólta, Gunnar Óli, Baldur Jörgen og Tóti.
Tröllabörn þakka Guðnýju Sölva og Dóru Maju fyrir öll eggin.
Hér koma svo nokkrar myndir og svo miklu meira af myndum í hlekk undir.
Hrafnhildur Sverrisdóttir og Arnar Ólafsson
Hér er verið að bíða eftir því að leikur hefjist.
Þessi voru öll hress og hreinlega rúlluðu Tröllabörnunum upp.
Jónas og Sveinn Þorsteins. Sveinn Þór lengst til hægri.
Helga Hermannsdóttir að útskýra reglurnar og Gunnar Smári
tæknitröll fylgist spenntur með.
Sveinn að kasta.
Baldur Jörgen mætti í sínu fínasta pússi. Baldur keppti
fyrir hönd Tröllabarna með bróður sínum Daníel. Það fer engum sögum af því hvernig þeir stóðu sig.
Hér er Anna Kristins að kasta kúlunni.
íris að kasta.
Þar sem þetta var styrktarmót fyrir Snerpu þá var að
sjálfsögðu hægt að styrkja á staðnum. Hér er Helgi Magg að setja nokkra þúsundkalla í skálina. Ég held að
ég sé ekki að ljúga neinu en þetta var líklega í annað skiptið sem Helgi fyllti á körfuna og var ekki spar á peninginn.
Glæsilega gert hjá Helga.



Athugasemdir