Brekkusöngur
sksiglo.is | Almennt | 31.07.2010 | 15:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 616 | Athugasemdir ( )
Þær stöllur Eva Karlotta og Ragna Dís slógu heldur betur í gegn með frábærum brekkusöng eftir miðnætti á malarvellinum.
Fjöldi fólks lagði leið sína á völlinn og var flott stemning. Eva Karlotta og Ragna Dís renndu í gegnum hvern slagarann á fætur öðrum og fólkið sem var mætt í brekkuna var vel með á nótunum og söng með.
Þessi viðburður sem ekki var á skipulagðri dagskrá kom mjög skemmtilega á óvart og var mál manna að þetta ætti að vera árlegur viðburður á malarvellinum enda svæðið tilvalið fyrir allskyns viðburði.

Mikill fjöldi fólks var samakominn í brekkuna við malarvöllin og var stemningin mjög góð

Athugasemdir