Bylgjan á Sigló
Í morgun mættu Bylgjumenn í Þjóðlagasetrið á Siglufirði þaðan sem þeir verða með beina útsendingu yfir helgina. Sigló.is brá sér á staðinn til að taka myndir og hitti þar fyrir Ívar Guðmundsson sem var hinn hressasti. Ívar virtist ánægður með að vera í firðinum enda konan hans ættuð frá Sigló.
Bylgjan er á 80 daga ferðalagi umhverfis landið og verður á Siglufirði nú á Jónsmessuhátíðinni og á Blúsdögum á Ólafsfirði um þá næstu. Það er ekki að ástæðulausu að þessi helgi varð fyrir valinu enda stórkostleg dagskrá hér á Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins.
Sjá nánar um Jónsmessuhátíðina HÉR
Athugasemdir