Djúpið í Bátahúsinu
sksiglo.is | Almennt | 06.11.2011 | 06:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 189 | Athugasemdir ( )
Í dag sunnudag verður leikritið Djúpið sýnt í Bátahúsi Síldarminjasafnsins.
Um er að ræða einleik stórleikarans Ingvars E. Sigurðssonar, en verkið
var skrifað með hann í huga.
Jón Atli Jónasson, höfundur verksins, þreytir hér frumraun sína sem leikstjóri. Á vefsíðunni midi.is er lýsing á verkinu: ,,Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum.

Hér er komið nýtt, íslenskt verk sem leikhús um alla Evrópu eru nú í óða önn að tryggja sér sýningarréttinn á. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.“
Forsala aðgöngumiða fer fram í Síldarminjasafninu og miðapantanir í síma 467-1604. Miðinn kostar 3.400 krónur. Sýningin fer fram kl 20 sunnudaginn 6. nóvember, húsið opnar kl. 19.
Texti og mynd: Aðsent
Athugasemdir