Efnilegir markmenn

Efnilegir markmenn Knattspyrnuskóli Grétars Rafns heldur áfram af fullum krafti. Það var svo sannarlega ánægjuleg heimsókn sem krakkarnir fengu í gær.

Fréttir

Efnilegir markmenn

Flottir markmenn
Flottir markmenn
Knattspyrnuskóli Grétars Rafns heldur áfram af fullum krafti. Það var svo sannarlega ánægjuleg heimsókn sem krakkarnir fengu í gær.

Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður mætti á svæðið og sýndi flotta takta.

Ungir og upprennandi markmenn fengu þarna ómetanlega reynslu og krakkarnir fengu að spreyta sig gegn besta markmanni landsins.

Gunnleifi leist mjög vel á skólann og hrósaði krökkunum fyrir metnaðinn  sem þau voru að leggja í æfingarnar.

Hann talaði um mikilvægi þess að hlúa vel að grasrótinni og standa vel að æfingum.

Þegar Grétar Rafn kom að máli við hann um að koma á Siglufjörð og hjálpa til í knattspyrnuskólanum þá var hann meira en til.

Gunnleifur var mjög ánægður þá heimilislegu stemmningu sem einkennir skólann og var hrifinn af því hve vel væri staðið að öllu, allt frá þjálfuninni til allra sjálfboðaliðanna sem vinna við skólann.

Hann nýtti líka tækifærið og upplifði alvöru siglfirska gestrisni þegar hann skellti sér í ljúffengan mat heima hjá Dodda Birgis. En þeir eru góðir félagar og fyrrum samherjar á knattspyrnuvellinum.

Það eru greinilega góðir hlutir að gerast í knattspyrnuskólanum.





Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst