Egilssíld fær andlitslyftingu
Það er gaman að sjá öll þau frábæru framtök sem í gangi eru á Siglufirði og Hansi í Egilssíld leggur svo sannarlega sitt af mörkum í þeim málum. Hefur hann nú ráðist í að endurnýja járnið á vesturgafli hússins með aðstoð smiðanna Hjalla og Gústa.
Verkið, sem hófst fyrir síðustu helgi hefur, hefur gengið vel fyrir sig og er nú langt á veg komið. Framtakið hjá Hansa er kærkomið og mun aðstoða við fegrun bæjarins í sumar en framkvæmdin sýnir hvað bæjarbúar geta gert mikið til að fegra ásýnd bæjarins.
Verður nú gaman að fylgjast með áframhaldandi framkvæmdum húseigenda á Siglufirði í sumar en útlit er fyrir að flest hús við torgið í miðbæ Siglufjarðar muni fá talsverða andlitslyftingu á næstu vikum og mánuðum. Sjá frétt Litgreining Siglufjarðar.
Athugasemdir