Slysavarnarskýlið við Almenningsnöf
sksiglo.is | Almennt | 26.08.2013 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 644 | Athugasemdir ( )
Slysavarnarskýlið við Almenningsnöf
Slökkvilið Fjallabyggðar var með brunaæfingu og þar var einmitt
slysavarnarskýlið í aðalhlutverki.
Slysavarnarskýlið er búið að standa þarna síðan ég man
eftir mér og maður hefur farið óteljandi ferðir þarna framhjá og töluvert oft stoppað þarna þegar maður tók rúntinn
nýkominn með bílpróf.
Mér fannst reyndar alltaf vinalegt að sjá skýlið og ég á eftir
að sakna þess mikið þó að margir hafi viljað að það færi, ja eiginlega nákvæmlega eins og það fór.
En nóg um það og meira af myndum af æfingum Slökkviliðs
Fjallabyggðar.
Ingvar Erlingsson sendi okkur myndir frá æfingunni og þökkum við honum
mikið vel fyrir.

Hérna svissar Ámundi um hlutverk og fer úr Slökkviliðinu yfir í
Brunaliðið í örskotsstund.




Athugasemdir