KS/Leiftur úr leik

KS/Leiftur úr leik Stelpurnar okkar í 4.flokki KS/Leifturs hafa nú lokið þátttöku sinni á Gothia Cup. Það er óhætt að segja að stúlkurnar hafi staðið sig

Fréttir

KS/Leiftur úr leik

Stelpurnar okkar
Stelpurnar okkar
Stelpurnar okkar í 4.flokki KS/Leifturs hafa nú lokið þátttöku sinni á Gothia Cup. Það er óhætt að segja að stúlkurnar hafi staðið sig með miklum sóma og árangur þeirra á mótinu mjög góður.

Stúlkurnar léku í gær við lið Eskiltuna í 8-liða úrslitum og töpuðu þeim leik með þremur mörkum gegn engu.

Þreyta og meiðsli voru farin að segja til sín í þessum leik og því við ramman reip að draga.

Árangurinn er engu að síður frábær og geta Siglfirðingar verið stoltir af afrekum þeirra.

Til hamingju stelpur.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst