Silfur á Torginu
sksiglo.is | Almennt | 01.08.2010 | 10:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 554 | Athugasemdir ( )
Hljómsveitin Silfur lék við hvurn sinn fingur á sviðinu við Ráðhústorgið og flutti lög af sínum fyrsta geisladisk fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á Torgið.
Hljómsveitin náði upp góðri stemningu og spiluðu fjölda laga og þar af lög af nýútkomnum hljómdisk þeirra.
Hljómdiskurinn sem fékk nafnið Ekkert Vesen inniheldur 11 íslensk lög, þar af 2 þekkt lög sem
bandið tók upp á sína arma. Það er Grýlu-lagið Valur og jarðarberjamaukið hans sem flestir þekkja sem Hvað er að ske og gamli Flowers-slagarinn Slappaðu af.
Það var ekki annað að sjá en að hljómsveitin næði vel til fólks og skemmtu ungir jafnt sem aldnir sér vel.




Athugasemdir