Knattspyrnuskólanum lokið þetta árið.

Knattspyrnuskólanum lokið þetta árið. Knattspyrnuskóla Grétars Rafns Steinssonar lauk á föstudaginn með því að þjálfararnir frá Bolton Wanderes

Fréttir

Knattspyrnuskólanum lokið þetta árið.

Verðlaunahafar ásamt þjálfurum.
Verðlaunahafar ásamt þjálfurum.
Knattspyrnuskóla Grétars Rafns Steinssonar lauk á föstudaginn með því að þjálfararnir frá Bolton Wanderes Akademíunni afhentu nemendum viðurkenningar sínar, einnig voru afhent hin ýmsu verðlaun og má þar á meðal  nefna áritaðar landsliðs- og Boltontreyjur af Grétari Rafni og fleiri góðar gjafir.


Hápunkturinn var svo þegar þjálfararnir tilkynntu að þær Rebekka Ingvarsdóttir og Kristín Júlía Ásgeirsdóttir hefðu verið valdar til að fara til Stjörnunar í Garðabæ og Andri Freyr Sveinsson til Bolton Wanderes á reynslu til unglingaliðsins og óskum við þeim til hamingju með þetta.

Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við skólann þetta árið en 15 til 20 stiga hita var nánast alla daga skólans.

115 nemendur alls staðar af landinu voru við skólann þetta árið og þar af gistu 24 hressir strákar að Hóli.
Það er mat okkar sem standa að baki skólans að þjálfararnir sem komu þetta árið hafi náð vel til krakkanna og unnið sitt verk vel og því er það von okkar að krakkarnir hafi lært mikið af þeim.

Góðir gestir heiðruðu skólann með nærveru sinn en það voru þau Sandra Sigurðardóttir, Þorlákur Árnason og Gunnleifur Gunnleifsson.

Grétar Rafn metur uppeldisfélag sitt mikils og færði því að gjöf 40 stk. veglegra fótbolta frá Adidas en KS hefur stutt skólann með miklum dugnaði.

Flestir þeir nemendur er spurðir voru sögðust ætla að koma að ári og það á einnig við um þjálfarana því þeir slást yfirleitt um að komast í ferðina til Íslands því reynt er að gera þetta að upplifun fyrir þá líka og má þar á meðal nefna hestaferð, sjóstöng og síðan taka þeir alltaf þátt í hraðmóti old boys á sparkvellinum sem Alli Arnars hefur veg og vanda af.

Nú eru þeir flestir á leið út í heim til að leiðbeina krökkum og má þar á meðal nefna Suður-Kóreu, Kanada og Noreg sem eru meðal staða sem þeir eru á leið til á næstunni. 

Til þess að skóli sem þessi geti starfað kemur mikið að fólki og fyrirtækjum að málunum og langar okkur til að þakka eftirtöldum:

Knattspyrnufélagi Siglufjarðar, Fjallabyggð, ÚÍF, Sparisjóði Siglufjarðar, Ramma hf, Allanum, Coke, Aðalbakarí, Rauðku, KSÍ, Fiskmarkaði Siglufjarðar, Soccerade, starfsmönnum Hólsvallar, Old Boys KS, Laugu, Gulla Stebba, Elmari, Jóa Mara, Oddbirni, Erlu Helgu, Immu, Pússlu, Kollu Dan, Sigurbjörgu, Boggu Steins, Gunnu Hauks, Hödda Júll, Magga Jónasar, Hrönn Fanndal, Söndru Sigurðar, Þorláki Árnason, Gunnleifi Gunnleifssyni.

Síðast en ekki síst langar okkur að þakka öllum þeim sem heimsóttu skólann þetta árið og vonandi sjáumst við öll að ári.
 
Með bestu kveðju
 
Knattspyrnuskóli Grétars Rafns
 


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst