Eftir brunann
sksiglo.is | Almennt | 19.04.2009 | 21:26 | Síldarminjasafnið | Lestrar 490 | Athugasemdir ( )
Bak við þreytt og bogin þil
bjó hér vilji ýmsra tveggja.
Einhver mun hafa orðið til
innan þessara grænu veggja.
Þetta orti Sigurður Helgi Sigurðsson hafnarvörður, Siggi Dallas, daginn áður en Sunnubragginn græni með sína fjölbreytilegu sögu hvarf í eldi og eimyrju. Eftir liggja undnar bárujárnsplötur og sviðnir raftar. Útsýni hefur opnast frá Torginu suður til safnhúsanna og fram í Hólsdal. En það er eins og eitthvað vanti.
Athugasemdir