Er líða fer að jólum
sksiglo.is | Almennt | 02.11.2010 | 06:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 543 | Athugasemdir ( )
Senn líður að jólum og því ekki seinna vænna en að fara að huga að undirbúningi þeirra.
Fjallabyggð hefur undanfarin ár staðið fyrir aðventuhátið og er nú kominn tími til að huga að árlegri aðventuhátíð.
Kveikt verður á jólatrénu á Siglufirði og Ólafsfirði laugardaginn 27. nóvember og sama dag verður jólamarkaður í og við Tjarnarborg.
Einnig verður jólamarkaður 11. desember og jólatrjáasala fyrir íbúa.
Allir þeir sem ætla sér að vera með viðburði á aðventunni geta haft samband við skóla - og menningarfulltrúa Fjallabyggðar.

Athugasemdir