Eyfirskt heimsmet.

Eyfirskt heimsmet. Innsend frétt. Í tilefni tíu ára afmælis: Hymnodia setur heimsmet ... eyfirskt heimsmet í það minnsta

Fréttir

Eyfirskt heimsmet.

Innsend frétt.

 

Í tilefni tíu ára afmælis:

Hymnodia setur heimsmet

... eyfirskt heimsmet í það minnsta

 

Tíu tónleikar á tíu klukkutímum í tíu kirkjum

laugardaginn 1. júní

 

hymnodia

Myndir: Þórhallur – Pedromyndir


Ekki hafa fundist heimildir um að þetta hafi verið gert áður hér á landi og þótt víðar væri leitað

 

13.00 Laufáskirkja

14.00 Svalbarðskirkja

15.00 Kaupangskirkja

16.00 Munkaþverárkirkja

17.00 Minjasafnskirkjan

18.00 Lögmannshlíðarkirkja

19.00 Möðruvallaklausturskirkja

20.00 Stærra-Árskógskirkja

21.00 Vallakirkja

22.00 Ólafsfjarðarkirkja

 

Tónleikarnir verða 25 mínútna langir en kórinn syngur tvær efnisskrár til skiptis. Aðgöngumiði í einni kirkju gildir í allar sem eftir eru og fólk getur því heyrt alla efnisskrána með því að mæta í tvær kirkjur eða fleiri. Tónleikarnir í Ólafsfjarðarkirkju gætu orðið eitthvað lengri ef þrek kórsins leyfir og stemmningin er góð. Sungin verða alþekkt kórlög í bland við lög frá ýmsum löndum, ný og gömul.

 

Með þessu uppátæki fagnar Hymnodia tíu ára afmæli kórsins en safnar líka aurum til að gefa út jólaplötu sem kemur út í haust. Hymnodia er þekkt fyrir alls kyns uppátæki, tónlistarspuna og gjörninga jafnt sem fágaða sígilda kórtónlist. Kórinn söng Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands sem vakti athygli en misjafnar tilfinningar, komið fram með Skálmöld, sett upp óperu, haldið glæsilega barokktónleika og tónleika með rómantískum kórverkum og haldið spunatónleika á bílaverkstæði og gamalli síldarverksmiðju svo eitthvað sé nefnt. Nú æfir Hymnodia blöndu af alþýðutónlist og kórverkum frá ýmsum löndum fyrir tónlistarskemmtun sem haldin verður á haustmánuðum víða um Norðurland. Þar sýna kórfélagar á sér nýjar hliðar, leika á alls kyns óvenjuleg hljóðfæri, segja sögur og fleira. Á næsta vetri eru svo nokkur stór verkefni í bígerð, nýstárlegur flutningur á einu mesta stórvirki Bachs, útgáfutónleikar og spennandi viðburðir sem of snemmt er að segja frá nú. Hymnodiufélagar eru til í ýmislegt.

  

Nánari upplýsingar gefa Eyþór Ingi Jónsson kórstjóri í síma 866-3393 eða á netfanginu  HYPERLINK "mailto:eythor@akirkja.is"eythor@akirkja.is og Pétur Halldórsson í síma 663-1842, netfang  HYPERLINK "mailto:peturh@ruv.is"peturh@ruv.is.

 

Með kveðju,

Hymnodia


Athugasemdir

02.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst