Félag eldriborgara á Örkinni
sksiglo.is | Almennt | 02.05.2009 | 17:10 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 593 | Athugasemdir ( )
Sunnudaginn 26. apríl hélt Sveinn Björnsson með félag eldriborgara Siglufjarðar í árlega ferð þeirra á Örkina í Hveragerði.
Vart þarf frá því að segja að hópurinn skemmti sér konunglega en milli þess sem bornar voru fram kræsingar var dansað og sungið af lífs og sálarkröftum. Föstudaginn 1. maí hélt hópurinn síðan heim á leið eftir vel heppnaða ferð.
Myndir HÉR
Athugasemdir