Félag stofnað um Síldarævintýrið á Siglufirði
Síðastliðinn fimmtudag var fundur um Síldarævintýrið 2010 á Allanum þar sem um 30 manns mættu. Helstu málefni fundarins voru annarsvegar stofnun félags um Síldarævintýrið svo að hægt væri að móta og fastsetja stefnu í þróun þess og hinsvegar hugmyndaflæði um dagskrárliði Síldarævintýrisins 2010.
Fundurinn gekk vel fyrir sig en nýráðinn framkvæmdarstjóri Síldarævintýrisins 2010, Gunnar Smári, fór yfir stofnun félagsins og tilgang þess. Fjöldi manns og nokkur fyrirtæki skráðu sig sem stofnmeðlimi í félaginu og hafa þannig atkvæðarétt um áframhaldandi þróun og framkvæmd Síldarævintýrisins á Siglufirði.
Eftir að félagið hafði verið rætt fór Finnur Yngvi gróflega yfir þær hugmyndir sem komið höfðu fram um dagskrárliði Síldarævintýrisins 2010. Umræðan leiddi til þess að margar góðar hugmyndir voru bornar upp og á nefndin því úr miklu að moða á næstu fundum. Stefnt er að því að vel mótaður rammi verði kominn yfir dagskrá Síldarævintýrisins um miðjan Maí mánuð og þá verði allir stærstu viðburðirnir komnir á blað.
Lóa nefndi að hún færi nú á skrið með að bóka þær hljómsveitir sem koma til með að spila á Allanum og að sjálfsögðu væri þeim ætlað að spila á sviðinu eins og síðastliðin ár. Rætt var um að virkja þyrfti hagsmunaaðila í bænum en að fjárframlög væru ekki endilega það sem leitað væri eftir, mikilvægara væri að fá þá til þátttöku. Gaman væri einnig að fá einstaklinga til þátttöku og jafnvel að skipuleggja eitthvað í kverfunum.
Finni Hauks nefndi að frábært væri að stuðla að ýmsum keppnum milli bæjarbúa, fyrirtækja eða jafnvel meiri og minnihluta í bæjarstjórn. Hugmyndir sem upp komu voru meðal annars reiptog yfir höfnina, söngvakeppni, spurningakeppni, fótboltamót eða kassabílakeppni. Allt í gamni gert og í þeim einum tilgangi að gera hlutina skemmtilega.
Allt yfirbragð Síldarævintýrisins tekur nú breytingum og færist áherslan á heimamenn og að nýta þann mannauð sem Siglufjörður og Fjallabyggð öll hefur uppá að bjóða. Fyrst og fremst þarf fólk í heimabyggð að hafa áhuga á hátíðinni og að taka þátt í henni.
Megin niðurstaða fundarins var hinsvegar sú að mikil ánægja er með að skipulag Síldarævintýrisins á Siglufirði er nú komið í góðar hendur og að því hefur nú þegar verið unnið í 12 vikur. Jákvæðni í garð þess hefur því aukist umtalsvert og engu er líkara en að eftirvænting sé til þess að sjá hvað verður í boði.
Nú hefur verið stofnað félag um áframhaldandi þróun Síldarævintýrisins á Siglufirði.







Athugasemdir