Ferðafélag Siglufjarðar stendur fyrir göngu laugardaginn 10. ágúst
Innsend frétt. Ferðafélag Siglufjarðar stendur fyrir göngu um suðureggjar Siglufjarðarfjalla, laugardaginn 10. ágúst.
Gengið frá Skarðdalsviki, efstu beygju á Siglufjarðarskarðsvegi að austanverðu kl. 8:30. Gengið
suðaustur og fjallatoppar þræddir að Almenningshnakka, sem er hæstur siglfirskra fjalla. Komið
er niður Hólsskarð og gengið út Hólsdalinn. Hér er um bratta og klettótta leið að ræða, með
lausum skriðum og eftir háum eggjum. Þessi ganga er ekki fyrir lofthrædda en leiðin býður upp á
stórfenglegt útsýni til allra átta.
Verð: 2.000 kr. Göngutími 8–10 klst. Ferðin ræðst af veðri og vindum.
Muna eftir nesti, hlýjum fatnaði og góðum skóm. Nánari upplýsingar í síma 898 4939
Athugasemdir