Ferðafélag Siglufjarðar 16. júlí.
sksiglo.is | Almennt | 14.07.2011 | 12:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 235 | Athugasemdir ( )
Botnaleið úr Fljótum 16. júlí kl. 10:00 - Skráning er hafin. Vegalengd: 9-10 km. Mesta hæð: 710 m. Göngutími: 4-5 klst. Fararstjóri: Gestur Hansson Verð: 1500 kr. Rúta er innifalin í verðinu. Brottför frá Hóli klukkan 10:00. Skráning í síma 699 5022 & 898 4939.
Leiðarlýsing:
Ferðin hefst við Lambanes-Reyki og er stikum fylgt þaðan upp norðurhlíð Nautadals eftir bolahrygg. Hryggurinn mun vera nefndur eftir hinum fræga Þorgeirsbola sem á að hafa drepið þar ferðamenn snemma á 19. öld. Við enda Bolahryggs, fyrir ofan botn Nautadals er haldið til norðausturs í Botnleiðarskarð. Þar sést í suðaustri Almenningshnakki (929 m). Fjallið Blekkill blasir við í austri en í norðri Selfjall.
Fljótamegin er þessi fjallabálkur nefndur einu nafni Siglufjarðarfjöll. Úr skarðinu er bratt niður í Botna, þar í miðju skálarhvolfinu er Botnaleiðarhóll. Af honum sér niður í Siglufjörð og er gengið niður með Blekkilsánnni og tekur þá við vel gróinn Geldingahlíð milli Blekkilsár og Selár og þaðan er komið niður að vatnsbóli Siglufjarðar í Hólsdal.
Heimasíða Ferðafélagsins: fs.fjallabyggd.is
Texti: Elín Þorsteinsdóttir

Athugasemdir