Vegvísir á vefnum Ferðafréttir, Ferðmálastofa
Ábending til einstaklinga og fyrirtækja sem vinna að nýsköpun, atvinnuuppbyggingu eða menningarstarfsemi. Hér er komin áhugaverður tengill á allflesta sjóði og stuðningsaðila sem styðja við atvinnulífið.
Vegvísir á vefnum fyrir fyrirtæki og einstaklingaStuðningsumhverfi nýsköpunar hefur vaxið mikið á síðustu árum og er oft á tíðum erfitt að átta sig á hvert hlutverk hvers og eins er í stuðnings-umhverfinu. Síðustu mánuði hefur teymi á vegum iðnaðarráðuneytis og undirstofnana þess unnið að kortlagningu þjónustu sinnar gagngert til að veita betri þjónustu og ná auknum árangri í ráðstöfun opinberra fjármuna.
Afrakstur vinnunnar er nú að skila sér í opnun á nýjum og sameiginlegum vef fyrir ráðuneytið og undirstofnanir þess; Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ferðamálastofu, Byggðastofnun og Orkustofnun. Þessi nýi upplýsingarvefur heitirwww.atvinnuvegurinn.is og er hugsaður sem leiðarvísir um þjónustuframboð fyrrnefndra aðila þannig að einstaklingar og fyrirtæki geti á auðveldan hátt fundið þá þjónustu og upplýsingar sem leitað er eftir.
Á vefsíðunni er hægt að finna upplýsingar um þá ráðgjöf og þjónustu sem stofnanirnar veita, þau námskeið sem í boði eru, styrki og fjármögnun, tölfræði og skýrslur, leyfis- og gæðamál, tæknirannsóknir auk almennra upplýsinga um stofnanirnar og ráðuneytið. Þessi vinna er liður í markvissu starfi innan ráðuneytisins sem miðar að því að koma á betra skipulagi á stoðkerfið eftir að ákvörðun var tekin um það síðastliðið haust að greina stoðkerfi atvinnulífs og nýsköpunar á vegum iðnaðarráðuneytis með þarfir atvinnulífsins að leiðarljósi.
(Frétt tekin af Ferðafréttir, Ferðmálastofa 4. okt. 2011)
Athugasemdir