Fiskvinnslufólk í Eyjafirði og Fjallabyggð óttast afleiðingar kvótafrumvarpanna.
sksiglo.is | Almennt | 09.06.2011 | 10:45 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 187 | Athugasemdir ( )
Fiskvinnslufólk í Eyjafirði og Fjallabyggð hefur sent alþingismönnum undirskriftalista þar sem áhyggjum er lýst af áhrifum fyrirhugaðra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Rúmlega 240 manns skrifuðu undir bréfið til þingmannanna:
“Við undirrituð, starfsmenn í fiskvinnslu í Eyjafirði, mótmælum þeim ásetningi stjórnvalda að flytja störfin okkar til einhverra annarra með tilflutningi aflaheimilda frá einum stað til annars. Þannig er vegið að fjárhagslegri afkomu hundruða fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu.Í þeim lagafrumvörpum um stjórn fiskveiða sem nú eru til umfjöllunar er fjallað ítarlega um fiskveiðar og hvernig þeim skuli háttað. Í engu er tekið tillit til þeirra sem starfa við fiskvinnslu í landi, enda kemur orðið fiskvinnsla aldrei fyrir í þessum lagatextum.
Með því er áratuga reynslu okkar og þekkingu í fiskvinnslu enginn sómi sýndur. Fiskvinnslan verður færð aftur um áratugi með tilheyrandi verðmætatapi fyrir þjóðarbúið allt.”
Athugasemdir