Fjölskyldudagur í Grafarvogskirkju næstkomandi sunnudag 26. maí.

Fjölskyldudagur í Grafarvogskirkju næstkomandi sunnudag 26. maí. Siglfirðingafélagið heldur sinn árlega fjölskyldudag í Grafarvogskirkju næstkomandi

Fréttir

Fjölskyldudagur í Grafarvogskirkju næstkomandi sunnudag 26. maí.

Innsend frétt.


Heil og sæl!

 

20. maí voru 95 ár liðin síðan Siglufjarðarkaupstaður, fékk sín kaupstaðarréttindi.

Það bendir á að 100 ára afmæli kaupstaðarins, er í mikilli nánd.

Siglfirðingafélagið heldur sinn árlega fjölskyldudag í Grafarvogskirkju næstkomandi sunnudag 26. maí.

Fjölskyldudagurinn hefst með hátíðarguðsþjónusta kl.14.00.

Hugleiðingu flytur Siglfirðingurinn Þóra Guðmundsdóttir oft ,kennd við flugfélagið Atlanta.

Hátíðarsöngvar séra Bjarna Þorsteinssonar „föður Siglufjarðar“ verður flutt í messunni.

 

Bronsstytta sem hefur verið gerð af honum og svo nefnt „Bjarnatorg“,

verður vígt við lok Þjóðlagahátíðar þann 7. júlí næstkomandi.

Gefendur eru afabarn séra Bjarna,

Arnold Bjarnason og Siglfirðingurinn Páll Samúelsson.
Styttan af séra Bjarna verður til sýnis í Grafarvogskirkju

á fjölskyldudegi Siglfirðingafélagsins í Hátíðarkaffisamsæti Siglfirðingafélagsins.


Siglfirðingar „nær og fjær“ eru boðnir velkomnir.

 

 

Með blessunaróskum,

Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur

sími: 891-6688


Athugasemdir

01.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst