Fótbolti.net fjallar um KS/Leiftur
Fótbolti.net fjallaði í gær ýtarlega um KS/Leiftur þar sem fyrirliðar allra liðpanna spáðu fyrir um gengi liðanna í 2. flokki í sumar.
Fótbolti.net stefnir á að fjalla ýtarlega um 2. deild karla í sumar og eru liðin nú kynnt fyrir notendum síðunnar. KS/Leiftur fær góða umsögn frá Magnúsi Má, ritstjóra síðunnar, þar sem hann lofar mörgum leikmönnum liðsins í hátt. Má þar helst nefna Ragnar Hauksson, íþróttamann ársins í Fjallabyggð, en hann var markahæsti leikmaður 2. deildar í fyrra.
KS/Leiftur, sem lenti í 8. sæti í fyrra, er spáð 7 sæti í deildinni þetta árið en að sjálfsögðu stefna menn enn hærra en það enda um stórgott lið að ræða.



Athugasemdir