Frábćr stemmning á Strandblaksmóti Rauđku

Frábćr stemmning á Strandblaksmóti Rauđku Á laugardeginum um verslunarmannahelgina vöknuđu strandblakarar snemma og spiluđu ţessa frábćru íţrótt viđ bestu

Fréttir

Frábćr stemmning á Strandblaksmóti Rauđku

Á laugardeginum um verslunarmannahelgina vöknuðu strandblakarar snemma og spiluðu þessa frábæru íþrótt við bestu mögulegu aðstæður á vellinum við Rauðku.

Drengirnir byrjuðu og mættu fjögur pör til leiks þar sem Gulli Stebbi og Dawid báru sigur úr bítum.

strandblak

Hjá stúlkunum mættu níu pör og þar var það Anna María og Silla Guðbrands sem sigruðu.

strandblak

Þrjú efstu sætin fengu flott verðlaun þar sem sigurvegararnir fengu glæsilegt gjafabréf á Hannes Boy.

Í lok móts voru fjölmargir happdrættisvinningar dregnir út meðal þátttakanda og vilja mótshaldarar þakka eftirtöldum fyrirtækjum fyrir stuðninginn. Rauðka, Nivea, BYKO, Bryggjan, Siglufjarðarapótek, Siglósport, Snyrtistofa Hönnu Siggu, Hárskeranum Hrólfi, Hárgreiðslustofu Sillu Hauks, Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar, Sporthúsið í Kópavogi, Ramminn, Fontana SPA Laugarvatni, Tapashúsið, Fiskkompaníið, Kjólakistan og Mjólka.


Athugasemdir

26.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörđur
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgiđ okkur á Facebook eđa Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst