Framboðsmál rædd í kvöld hjá Framsókn
sksiglo.is | Almennt | 20.04.2010 | 07:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 273 | Athugasemdir ( )
Framsóknarfélagið í Fjallabyggð heldur nú í kvöld klukkan 20.00 fund í Framsóknarheimili sínu að Suðurgötu á Siglufirði. Fundarefnið eru framboðsmál og staðfesting framboðslista flokksins.
Nú er farið að draga nær kosningum og má reikna með því að uppstilling flokkanna fari að lýta dagsins ljós. Enn hefur enginn flokkur lagt fram formlegan framboðslista en Siglo.is mun fylgjast grannt með þeim málum og bera lesendum síðunnar fréttirnar um leið og þær liggja fyrir.




Athugasemdir