Framkvæmt sem aldrei fyrr

Framkvæmt sem aldrei fyrr Siglfirðingar versla sem aldrei fyrr staðhæfir Ívar Sigurjónsson hjá Byko á Akureyri en verslunin hefur að undanförnu selt

Fréttir

Framkvæmt sem aldrei fyrr

Framkvæmt hjá Rauðku. Ljósmyndari; Hörður Júlíusson
Framkvæmt hjá Rauðku. Ljósmyndari; Hörður Júlíusson

Siglfirðingar versla sem aldrei fyrr staðhæfir Ívar Sigurjónsson hjá Byko á Akureyri en verslunin hefur að undanförnu selt meira efni til Siglufjarðar en gengur og gerist. Bæði á þetta við um efnissölu til fyrirtækja sem og einstaklinga.

 

Það er sérstök staða sem komin er upp á Siglufirði og gaman að vera vitni að því að það sé uppgangur einhverstaðar í miðjum storminum segir Ívar, en hann þarf að hugsa alveg aftur til sjöunda áratugar síðustu aldar til að minnast svo mikillar efnissölu til Siglufjarðar. Hann hefur hlerað iðnaðarmenn á svæðinu og það er alltaf sama sagan þegar kemur að Siglufirði „það er bara brjálað að gera“.


Ívar er ekki sá eini sem tekur eftir þessu, en ferðamenn í bænum hafa gjarnan orð á því hversu mikið um er að vera á Siglufirði. Bjarni Þór, eða „Bjarni Bæó“, sem var bæjarstjóri Siglufjarðar uppúr 1970 var á Sigló ásamt konu sinni Möggu fyrir skömmu og átti fréttamaður Sigló.is langt samtal við þau. Möggu hafði kviðið fyrir að koma í bæinn sem hún hafði svo sterkar taugar til en hún bjóst við því að bærinn hefði dalað mikið. Þvert á móti fann hún mikla orku þegar hún kom í bæinn og það kom henni þægilega á óvart að „hér eru allir að framkvæma“. „Þetta minnir mig á þessa gömlu góðu tíma þegar við bjuggum hérna í kringum 1970“ sagði Bjarni sem brosti út af eyrum í gamla bænum sínum.


Það er því óhætt að segja að lífið brosir við Siglfirðingum þessa dagana. Í miðri kreppunni hafa þeir snúið fleygi sínu gegnt straumnum en hafa jákvæðni sína og dugnað sem meðbyr í seglum.

 



Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst