Framsókn stefnir á prófkjör

Framsókn stefnir á prófkjör Í gærkvöld fór fram aðalfundur Framsóknarfélags Fjallabyggðar í Framsóknaheimilinu að Suðurgötu 4 á Siglufirði, var það

Fréttir

Framsókn stefnir á prófkjör

Í gærkvöld fór fram aðalfundur Framsóknarfélags Fjallabyggðar í Framsóknaheimilinu að Suðurgötu 4 á Siglufirði, var það fyrsti fundur sameinaðs félags. Aðal fundarefnið var komandi prófkjör. Um 30 manns sóttu fundinn enda farið að styttast í kosningar og flokkar farnir að huga að mönnun listanna.

 

Tvær tillögur voru uppi um það hvernig ætti að manna lista framsóknarmanna, annarsvegar var um að ræða prófkjör og hinsvegar að nefnd sæi um að raða á listann. Nokkrir aðilar tóku til máls á fundinum og mæltu þeir allir með fyrri tillögunni þar sem mikilvægt væri að fara eftir vilja fjöldans, tími væri kominn til að láta fólkið velja þá sem í forsvari eiga að vera. Eftir umræður var efnt til kosningar þar sem einróma var ákveðið að í prófkjör skildi halda.

Þeir Hermann Einarsson og Ingvar Erlings lýstu báðir yfir vilja sínum til að fara fram fyrir hönd flokksins og buðu því fram krafta sína ef félagsmenn kysu svo. Hermann talaði gróflega um það starf sem hann hefur unnið fyrir hönd flokksins en Ingvar um það hversu ánægður hann væri að nú væri loks kominn flötur fyrir nýja menn til að komast að.

Kosið var til prófkjörsnefndar sem nú tekur til starfa og stefnir hún á að auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum strax í næstu viku.


Athugasemdir

23.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst