Frances.is með opið hús í Svörtu Kríunni

Frances.is með opið hús í Svörtu Kríunni Nú ber vel í veiði fyrir okkur hér í Siglufirði, hjónin Eiríkssína og Jónas sem eiga og reka vefverslunina

Fréttir

Frances.is með opið hús í Svörtu Kríunni

Nú ber vel í veiði fyrir okkur hér í Siglufirði, hjónin Eiríkssína og Jónas sem eiga og reka vefverslunina www.frances.is verða hér í Siglufirði 21. maí og 22 maí. Þau koma klifjuð veiðivörum og ætla að hafa opið hús í Svörtu Kríunni frá 18:00 til 19:00 báða daganna.

Allir eru velkomnir og félagar í Stangveiðifélagi Siglfirðinga fá góðan afslátt. Við veiðihjónin á www.frances.is, Dr. Jónas og Frú Eiríksína höfum orðið vör við mikla eftirspurn eftir veiðiflugum hjá okkur þegar við höfum verið á ferðinni í Fjallabyggð með fullt af flugum í farteskinu.

Því hef ég ákveðið að vera með flugur til sölu á opnu húsi í Svörtu kríunni. Er það ekki síst vegna þess að ég fékk nýlega inngöngu í Stangveiðifélag Siglufjarðar. Vegna mikillar átthagaástar og til þess að sýna þakklæti fyrir það að hafa smogið í gegnum ströng skilyrði inntökunefndar, langar mig að bjóða 20% afslátt af öllum vörum. Bæði félagsmönnum og öðrum mönnum.

Eyrargata 2 verður því aftur veiðarfæraverslun þriðjudaginn 21. maí. Húsið opnar klukkan 18:00 og lokað verður um níueytið eða þegar veiðimenn hætta að streyma. Þeir sem ekki komast á þessum tíma geta haft samband við mig (Eiríksínu) í síma 6904583 og fundið tíma.

Mynd: Fengin á vef www.frances.is
Texti: Aðsendur


Athugasemdir

22.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst