Fréttatilkynning frá Samfylkingarfélögunum í Fjallabyggð.

Fréttatilkynning frá Samfylkingarfélögunum í Fjallabyggð. Á fundi Samfylkingarfélaganna í Fjallabyggð þann 21. apríl var listi Samfylkingarinnar vegna

Fréttir

Fréttatilkynning frá Samfylkingarfélögunum í Fjallabyggð.

Egill Rögnvaldsson, oddviti Samfylkingar
Egill Rögnvaldsson, oddviti Samfylkingar

Á fundi Samfylkingarfélaganna í Fjallabyggð þann 21. apríl var listi Samfylkingarinnar vegna bæjarstjórnarkosninganna þann 29. maí næstkomandi samþykktur.

 

Listann leiðir Egill Rögnvaldsson núverandi bæjarfulltrúi en við skipan listans var ákveðið að jafnræði yrði annars vegar á milli kynja og hins vegar á milli bæjarhluta. Fjöldi fólks gaf sig fram og bauð fram krafta sína en því miður komust færri að en vildu. Uppstillingarnefndin þakkar öllu því góða fólki fyrir áhugann. Niðurstaðan endurspeglar vel þá meginstefnu Samfylkingarinnar að listinn eigi að vera þverskurður af samfélaginu og að fulltrúar sem flestra stétta fái hljómgrunn. Samfylkingin er enda eini jafnaðarmannaflokkur landsins með breiða skírskotun.

Listann skipa:

1 Egill Rögnvaldsson - Bæjarfulltrúi
2 Helga Helgadóttir - Þroskaþjálfi
3 Jón Hrói Finnsson - Stjórnsýslufræðingur
4 Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir - Skrifstofumaður
5 Guðmundur Gauti Sveinsson - Deildarstjóri
6 Magnús G Ólafsson - Skólastjóri
7 Guðrún Árnadóttir - Ráðgjafi
8 Sæbjörg Ágústsdóttir - Skólaliði
9 Þrúður Sigmundsdóttir - Sjúkraliði
10 Ægir Bergsson - Verkamaður
11 Jón Á Konráðsson - Lögreglumaður
12 Hilmar Elefsen - Vélvirki
13 Nanna Árnadóttir - Þjónustufulltrúi
14 Jakob Kárason - Bakarameistari
15 Kristjana Sveinsdóttir - Skrifstofumaður
16 Ólína Þórey Guðjónsdóttir - Starfsmaður Iðju dagvistar
17 Rögnvaldur Ingólfsson - Húsvörður
18 Regína Guðlaugsdóttir - Íþróttakennari



Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst