Fundur hjá Atvinnuþróunarfélaginu
Ég fór á fund hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðarsvæðisins og Vaxtaþróunarfélags Eyjafjarðar sem var haldin í ráðhúsi Siglufjarðar (Fjallabyggðar) fimmtudaginn 21. mars. Fyrirfram ákveðnir fordómar mínir fyrir fundum hjá ríki, sveitar og bæjarfélögum gerðu það að verkum ég var með kvíðahnút í maganum fyrir mögulega leiðinlegum fundi, hrotum og svefnslefi.
En maður minn, fjúkk hvað þessir fordómar mínir breyttust. Þetta var alveg meiriháttar fundur og þeir sem voru með kynninguna voru mjög skemmtilegir og þolinmóðir við mann eins og mig, mann þarf helst að láta tyggja ofaní mig allt sem tengist umsóknareyðublöðum og öðrum þess háttar pappírum og skriffinsku og mjög erfitt með að gera mig skiljanlegan í stuttu máli.
Ef þú ert með hugmynd í litla kollinum þínum, sama hversu vitlaus sem þú heldur að hugmyndin sé, gæti verið sú hugmynd verið snilldin ein. Ég skil það sem svo (í stuttu máli og fyrir mann sem er meðaltregur á umsóknir og skriffinnsku) að hafir þú hugmynd af einhvers konar fyrirtæki eða framleiðslu sem ekki eru á staðnum fyrir, ef við tökum flugvélaframleiðslu eða hrossanautagúllas pökkun sem dæmi eða jafnvel saumavélanálaframleiðslu fyrir Zinger eða Overlook, þá er þetta eitthvað sem þú þarft að skoða (þetta þarf samt kannski að vera innan skynsamlegra marka). Ef þessi hugmynd getur gefið af sér starf eða störf á þínu svæði, sem er Fjallabyggð til dæmis, þá þarftu að skoða þetta. Þú getur fengið hjálp við þetta ef þú ert með góða hugmynd og leitar eftir hjálpinni.
Ég vona að sem flestir sem eru með einhverja hugmynd í kollinum og langar að reyna að komast áfram með hana, þá reyndu fyrir alla muni að mæta á næsta fund. Það sem til dæmis ég hefði viljað sjá á síðasta fundi er meira, miklu meira af ungu fólki. Mér skilst að næsti fundur verði haldin á Rauðku 15. apríl næstkomandi. Rúsínan í pylsuendanum er sú að þú færð frítt að borða líka. Þetta er win-win dæmi, frír matur og hugsanlega komin í bissnes með litlu hugmyndina af rafdíóðuplankastrekkjaranum sem þú ert búin að rogast með í heilaberkinum í mörg ár. Ég skora á þig að mæta.
Kv.Hrólfur Baldurs.
Athugasemdir