Fyrirlestri frestað vegna óviðráðanlegra orsaka

Fyrirlestri frestað vegna óviðráðanlegra orsaka Samkennd, sorg og kærleikur er ríkjandi á Siglufirði þessa dagana eftir að sorgarviðburður síðastliðins

Fréttir

Fyrirlestri frestað vegna óviðráðanlegra orsaka

Ljósmyndari; Helga Sigurbjörnsdóttir
Ljósmyndari; Helga Sigurbjörnsdóttir
Samkennd, sorg og kærleikur er ríkjandi á Siglufirði þessa dagana eftir að sorgarviðburður síðastliðins miðvikudags skók samfélagið allt en bæjarbúar tóku saman höndum líkt og um eina stóra fjölskyldu væri að ræða. Í kvöld var setefnt á að fyrirlestur yrði um sorgarviðbrögð í Siglufjarðarkirkju, vegna óviðráðanlegra orsaka frestast fyrirlesturinn, sem nánar verður fjallað um síðar.


Snaran þátt af sjálfum mér - Fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð verður haldinn í Siglufjarðarkirkju mánudagskvöldið 21. nóvember kl. 20:00. Fyrirlesari er sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslumála á Biskupsstofu.

Öll mætum við sorg og harmi í lífi okkar. Í fyrirlestrinum verður fjallað um ferli sorgarinnar, gerð grein fyrir þeim tilfinningum sem upp geta komið og úrvinnslu þeirra.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Sóknarnefndir og sóknarprestar í Hríseyjar -, Dalvíkur -, Ólafsfjarðar - og Siglufjarðarprestaköllum.

Athugasemdir

14.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst