Góð gjöf til Menntaskólans á Tröllaskaga

Góð gjöf til Menntaskólans á Tröllaskaga Sjávarútvegsfyrirtækið Rammi í Fjallabyggð hefur gefið Menntaskólanum á Tröllaskaga fimm hunduð þúsund krónur til

Fréttir

Góð gjöf til Menntaskólans á Tröllaskaga

Sjávarútvegsfyrirtækið Rammi í Fjallabyggð hefur gefið Menntaskólanum á Tröllaskaga fimm hunduð þúsund krónur til að efla starf skólans. Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri afhenti gjöfina föstudaginn 3. febrúar.

Lára Stefánsdóttir, skólameistari sagði þegar hún veitti gjöfinni viðtöku að stuðningur Rammans og sá velvilji sem stjórnendur fyrirtækisins hafa sýnt frá upphafi skipti skólann miklu máli. Skóli sem njóti öflugs stuðnings í heimabyggð hafi fleiri tækifæri til að vaxa og dafna. Fyrir starfsmenn sé ómetanlegt að finna stuðning samfélagsins, þeir eflist í starfi, ánægja aukist og allt skili þetta sér til nemenda. Fyrir nemendur sé einnig mikilvægt að finna að það sé áhugi og metnaður fyrir því að skóla þeirra gangi vel.

Ólafur Marteinsson segir að stjórnendur Ramma hafi úr fjarlægt fylgst með því af ánægju hve vel Menntaskólinn hafi dafnað. Auk þess að efla mannlíf og samfélag í Fjallabyggð almennt, auðveldi það fyrirtækinu að fá fólk til starfa að framhaldsskóli sé í byggðarlaginu. Áður hafi fólk sett fyrir sig einangrun og framhaldsskólaleysi en bæði málin séu nú farsællega leyst. Þar að auki verði samfélagið auðugra ef fólk á aldrinum sextán ára til tvítugs geti verið heima í stað þess að fara burt í skóla.

Menntaskólinn á Tröllaskaga tók til starfa haustið 2010. Þetta er fjölbrautaskóli með fimm námsbrautum, listabraut, íþrótta- og útivistarbraut,  félags- og hugvísindabraut, náttúruvísindabraut og starfsbraut. Kennt er eftir nýrri námsskrá og gert ráð fyrir að nemendur sem hefja nám við skólann ljúki því á þremur til fjórum árum. Nemendur eru um eitt hundrað, flestir frá Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík. Starfsmenn eru fimmtán.

Texti: Aðsendur
Mynd: GJS




Athugasemdir

14.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst