Gömul frétt frá 1962

Gömul frétt frá 1962 Birt í MYND dagblað, 29.ágúst 1962, texti: jásg. Ljósmyndir Steingrímur. Skurðgrafan er að skemma skíðalandið Siglufirði

Fréttir

Gömul frétt frá 1962

Birt í MYND dagblað, 29.ágúst 1962, texti: jásg.  Ljósmyndir Steingrímur.
 

Skurðgrafan er að skemma skíðalandið

Siglufirði 28.ágúst. -  Hvanneyrarskál er paradís Skíðamanna á Siglufirði og rómantískasta afdrep síldarfólksins. Í sumar hefur Landssíminn verið að grafa jarðstreng í hlíðinni fyrir neðan Hvanneyrarskál, og á að leggja síma- og rafstreng í skurðinn.


    Siglfirskir skíðamenn eru ekkert hrifnir af þessu, því að skurðurinn er grafinn niður hlíðina fyrir ofan bæinn og sömuleiðis er lagður þarna vegur, sem liggur þvert yfir skíðalyftuna. Þarna er eftirsóttasta skíðaland Siglfirðinga, og þessar framkvæmdir hafa orðið þeim til leiðinda og ama. En nauðsyn brýtur lög, og við skulum vona að þetta jarðrask bæti í staðinn  símaþjónustuna við Siglufjörð.              jásg.

myndSkurðgrafan, sem vinnur í snarbrattri hlíðinni, er tengd við jarðýtu
myndÖrin sýnir, hvar skurðgrafan er að verki og grefur ofan frá brún og niður í bæ

Athugasemdir

12.nóvember 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst