Gospelnámskeið - nokkur laus sæti
sksiglo.is | Almennt | 08.04.2010 | 08:31 | Sigríður María Róbertsdóttir | Lestrar 278 | Athugasemdir ( )
Gospelnámskeið verður haldið í annað sinn hér á Sigló, helgina 23. – 25. apríl næstkomandi. Hinn landsþekkti Óskar Einarsson, ásamt Hrönn Svansdóttur og Fanney Tryggvadóttur sjá um stuðið. Þau hafa öll mikla reynslu í tónlist og söng.
Við getum enn bætt við okkur nokkrum ef einhverjir hafa áhuga á að vera með, en hafa ekki skráð sig. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á ahb4089@gmail.com, hringja í Önnu Höllu, S. 864 31 79 eða tala við Biddý.
Námskeiðið kostar 8.000 krónur. Námskeiðið verður með svipuðu sniði og síðast, þ.e. æfingar föstudagskvöld, laugardag og sunnudagsmorgunn, endað með gospeltónleikum í kirkjunni á sunnudeginum. Námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga, söngreynsla í kór er kostur, en er ekki skilyrði.
Athugasemdir