Hafið bláa hafið.
sksiglo.is | Almennt | 01.10.2010 | 09:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 599 | Athugasemdir ( )
Skútan Nína II kom til hafnar á Siglufirði á miðvikudagskvöld og fer í dag.
Siglo.is kíkti um borð og ræddi við Halla (Harald Rögnvaldsson) skiptsjóra skútunnar.
Halli hefur siglt skútunni um heimsins höf en hann kemur frá Dalvík og ákvað að skreppa smá túr á henni til Siglufjarðar.
Hann grínaðist nú með að það hefði verið til þess að sleppa við það að mála heima hjá sér en tók svo fram að honum liði best á sjónum og þar vildi hann helst vera.
Þess má til gamans geta að Halli starfar sem vélstjóri á Mánaberginu, þannig að þegar hann kemur úr vinnunni á sjónum þá tekur áhugamálið á sjónum við.
Skútan er nýkominn heim úr ævintýralegri ferð til Scoresbysunds á Grænlandi og hefur siglt um 20.000 sjómílur í gegnum tíðina.
Ferðin til Grænlands er honum minnistæð en Baskarnir á N-Spáni eru honum einnig ofarlega í huga, en þar geymdi hann bátinn sinn eftir eina af hans mörgu ferðum.
Hann gerði nú lítið úr kostnaðinum sem fylgdi þessu og samanborið við það að eiga og reka sumarbústað þá væri þetta alls ekki svo dýrt, ferðafrelsið og tilfinningin sem fylgir því að stýra eigin skútu verður ekki metin til fjár.

Skútan Nína II í Siglufjarðarhöfn og fjallahringurinn skartar sínu fegursta í haustblíðunni.

Athugasemdir