Hafnarsvæðið

Hafnarsvæðið Hafnarsvæðið iðaði af lífi í gær. Fjöldi fólks naut lífsins í veðurblíðunni og þar mátti sjá krakka við veiðar, sjómenn koma með afla að

Fréttir

Hafnarsvæðið

Sjómenn koma með afla að landi
Sjómenn koma með afla að landi
Hafnarsvæðið iðaði af lífi í gær. Fjöldi fólks naut lífsins í veðurblíðunni og þar mátti sjá krakka við veiðar, sjómenn koma með afla að landi og fólk að njóta góðra veitinga á kaffihúsunum á svæðinu.



Það er alltaf mikil sjarmi yfir því að rölta um hafnarsvæðið og fylgjast með bátunum koma með aflan að landi. Fréttamaður siglo.is rölti um svæðið í blíðskaparveðri og kannaði mannlífið :



Þessir hressu sjómenn voru nýkomnir að landi með glæsilegan afla.



Meginupptistaða aflans var Hlýri og Steinbitur, glæsilegir fiskar.



Þessi fiskikör biðu þess að verða sótt af starfsmanni fiskmarkaðarins.



Fagur fiskur úr sjó.



Það var að venju nóg að gera hjá Valgeiri á Harbour House Café en hann gaf sér þó tíma til þess að mynda gesti staðarins fyrir facebook síðu Harbour House.



Gestir og gangandi fylgjast með af miklum áhuga þegar bátarnir koma með aflan að landi. Útlendum ferðamönnum finnst þetta afar sjarmerandi og mynda bátana í bak og fyrir.



Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst