Hannes Boy Café – opið hús laugardag og sunnudag
Veitingastaðurinn Hannes Boy Café er nú tilbúinn undir rekstur og mun þar verða opið hús á laugardag og sunnudag milli klukkan 12 og 18 þar sem gestum og gangandi er boðið uppá rjúkandi kaffi og kleinur.
Mikil eftirvænting hefur verið vegna opnun staðarins en stefnt er að því að fimmtudaginn 27. maí næstkomandi geti gestir loks notið þeirra kræsinga sem þar verða í boði.
Á laugardag og sunnudag verður einnig opið í þjónustumiðstöð Rauðku en þar er stefnt að því að rekstur hefjist um næstkomandi mánaðarmót. Mun þjónustumiðstöðin rýma minjagripasölu, upplýsingamiðstöð og veitingasölu með léttar veitingar.
Rauðka hefur einnig fjárfest í minigolfvelli og staðsett hann á lóð sinni við höfnina. Er þetta einn liður fyrirtækisins í að auka þjónsustustigið á Siglufirði og vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á golfíþróttinni.
Verið velkomin í heimsókn til Rauðku







Athugasemdir