Harbour House Café.

Harbour House Café. Bræðurnir Valgeir og Jónas Sigurðssynir opnuðu veitingastað við höfnina á Siglufirði árið 2009, sem þeir nefna Hafnarkaffi. Húsnæðið

Fréttir

Harbour House Café.

Hafnarkaffi á Siglufirði
Hafnarkaffi á Siglufirði
Bræðurnir Valgeir og Jónas Sigurðssynir opnuðu veitingastað við höfnina á Siglufirði árið 2009, sem þeir nefna Hafnarkaffi. Húsnæðið sem þeir keyptu var áður húsnæði þeirra sem sáu um löndun úr fiskiskipum og er staðsett við Hafnarvogina.

Þeir sáu fyrir sér aukningu í ferðamannaiðnaðinum þegar Héðinsfjarðargöng opnuðu sem raunin er á, og ákváðu að fara út í breytingar á húsnæðinu og útbúa það sem veitingastað. Á staðnum er hægt að fá mat og margar gerðir af kaffi. Nýr bjór Black Death er til sölu á staðnum sem Valgeir fékk Bruggverksmiðjuna Víking á Akureyri til að brugga fyrir sig og er mjög vinsæll.



Vertinn sjálfur: Valgeir.



Siglfirðingarnir: Valgeir og Kristín Sigurjónsdóttir.



Erlendir gestir á staðnum leyfðu myndatöku af fjölskyldunni.



Skipverji á Sigurborgu SH að slappa af meðan á löndun stendur.



Búið að flagga fána Lúxemborgar.

Texti og myndir: GJS


Athugasemdir

13.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst