Háskólalestin brunar um landið

Háskólalestin brunar um landið Háskólalest Háskóla Íslands heimsækir fjóra áfangastaði í næsta mánuði og býður upp á fjör og fræði fyrir alla

Fréttir

Háskólalestin brunar um landið

Háskólalest Háskóla Íslands heimsækir fjóra áfangastaði í næsta mánuði og býður upp á fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna. Meðfylgjandi er tilkynning um ferðir lestarinnar og viðburði á hennar vegum.


Háskólalest Háskóla Íslands leggur aftur af stað í langferð um landið og heimsækir fjóra áfangastaði í ár. Þar verður bæði boðið upp á námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir nemendur í eldri bekkjum grunnskóla og blásið til vísindaveislu fyrir alla fjölskylduna.

Á hundrað ára afmæli Háskóli Íslands 2011 var tímamótunum fagnað víða um land með svokallaðri Háskólalest sem ferðaðist um landið við miklar vinsældir. Lögð var áhersla á lifandi vísindamiðlun til ungs fólks og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Viðtökur voru með eindæmum góðar og fjölmenntu landsmenn á öllum aldri á viðburði Háskólalestarinnar á níu stöðum á landinu. 

Vorið 2012 leggur lestin af stað á ný með fræði og fjör fyrir landsmenn. Í maí verða heimsóttir fjórir áfangastaðir: Kirkjubæjarklaustur, Siglufjörður, Grindavík og Ísafjörður.

Í Háskólalestinni verða valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir grunnskólanemendur en að auki verður slegið upp litríkum vísindaveislum fyrir alla heimamenn með  stjörnuveri, sýnitilraunum, eldorgeli, mælingum og pælingum að ógleymdu Sprengjugenginu landsfræga.

Áhöfn Háskólalestarinnar þakkar landsmönnum ógleymanlegar viðtökur á liðnu ári og býður alla hjartanlega velkomna í Háskólalestina 2012.

Áætlun Háskólalestarinnar í maí 2012:

Kirkjubæjarklaustur     4. og   5. maí
Siglufjörður                11. og 12. maí
Grindavík                    16. og 19. maí
Ísafjörður                    25. og 26. maí

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á vef hennar:

http://www.ung.hi.is/haskolalestin

og á Facebook:

http://www.facebook.com/pages/H%C3%A1sk%C3%B3lalestin/168204169904925

Nánari upplýsingar um Háskólalestina veitir Guðrún Bachmann lestarstjóri í síma 864-0124.

Texti og mynd: Aðsent





Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst