Hauskúpan orðin sýnileg á ný

Hauskúpan orðin sýnileg á ný Ragnar Páll Einarsson listmálari hefur nú „skírt upp“ teikninguna af hauskúpunni, sem er á steini við Skarðsveginn, um einn

Fréttir

Hauskúpan orðin sýnileg á ný

Ragnar Páll leggur lokahönd á hauskúpumyndina, í þokunni við Skarðsveginn. Mynd: Jónas Ragnarsson
Ragnar Páll leggur lokahönd á hauskúpumyndina, í þokunni við Skarðsveginn. Mynd: Jónas Ragnarsson
Ragnar Páll Einarsson listmálari hefur nú „skírt upp“ teikninguna af hauskúpunni, sem er á steini við Skarðsveginn, um einn kílómetra fyrir ofan Skíðaskálann. Ragnar Páll hefur verið á Siglufirði að undanförnu og tekið þátt í tónlistarflutningi á skemmtunum í Síldarminjasafninu og víðar. Hann skrapp upp í Skarð fyrir nokkrum dögum og hafði með sér olíuliti og málaði ofan í gömlu teikninguna. Hefur hauskúpan sennilega aldrei verið jafn áberandi og ógnvekjandi og nú.

Jónas Ragnarsson fékk að skjótast með honum á staðinn til að smella myndum af síðustu pensilförunum. Þetta var um kvöldmat og þoka í Skarðinu. Á leiðinni sagði hann Jónasi söguna af hauskúpunni - og rjúpunum.


Hálf öld er síðan Ragnar Páll málaði hauskúpuna upphaflega. Það var sumarið 1960. Hann hafði verið að mála málverk uppi á Skarðshryggjum, átti liti eftir á litaspjaldinu og fékk þá hugmynd að mála hauskúpu á  stein við veginn til að hvetja vegfarendur til að aka með gát. Sagt er að mörgum ökumönnum hafi brugðið í brún þegar hauskúpan birtist þeim allt í einu út úr þokunni.

Fyrir tæpum tveim áratugum, sumarið sem Síldarævintýrið var haldið í fyrsta sinn, fékk Ragnar Páll ábendingu um að myndin væri að hverfa svo að hann tók sér pensil í hönd og málaði nýja hauskúpu. Hún horfði til hægri en sú eldri hafði horft til vinstri.

Hauskúpan mun ekki vera það eina sem Ragnar Páll hefur málað á steina við veginn í Skarðsdalnum. Eitt sinn málaði hann þrjár rjúpur á stóran stein uppi í Botni, áður en beygt er upp í Sneiðinginn. Þær voru svo eðlilegar að sagt er að landsfrægir skíðamenn, vörubílstjóri og leikfimikennari, hafi báðir skotið á þær þegar þeir voru á rjúpnaveiðum. Hver veit nema listmálarinn máli rjúpurnar á steininn á ný.

Ragnar Páll Einarsson er alinn upp á Siglufirði. Hann var í Gautunum meðan þeir voru hvað frægastir, en hefur lengi verið búsettur syðra. Ragnar Páll hefur oft komið „heim“ síðustu árin og gengið á flest fjöll við fjörðinn, nú síðast í júlí á Hólshyrnuna.

JR.

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst